Framkvæmdir hafnar við nýjar íbúðir á Dalvík

Tvö ný parhús í byggingu við Svarfaðarbraut á Dalvík

 Tréverk hefur hafið framkvæmdir við tvö ný glæsileg parhús við Svarfaðarbraut á Dalvík, þar sem rísa munu samtals fjórar íbúðir.

Húsin munu standa við Svarfaðarbraut 19–21 og 23–25 og eru einnar hæðar byggingar með bílskúr og verönd. Íbúðirnar við Svarfaðarbraut 19–21 eru um 140 m² að stærð, en íbúðirnar við 23–25 eru 152 m². Allar íbúðirnar eru rúmgóðar og bjartar, með tveimur svefnherbergjum, alrými, baðherbergi og þvottahúsi með tengingu við bílskúr.

Húsin eru hönnuð af Kollgátu arkitektum og eru uppsteypt með álklæðningu í ljósum lit og viðarklæðningu sem setur hlýjan svip á húsin. Aðkoma og bílastæði verða upphituð með snjóbræðslukerfi, og gert er ráð fyrir hleðslustöðvum fyrir rafbíla við bílskúra.

Framkvæmdir ganga vel og stefnt er að því að íbúðirnar verði til afhendingar í lok næsta árs. 
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband fyrir nánari upplýsingar.
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button

1. nóvember 2024
Tréverk ehf hefur hafið framkvæmdir við byggingu fjölbýlishús við Dvergaholt 1 á Akureyri. Um er að ræða fjölbýlishús á tveimur hæðum með 10 íbúðum. Áætluð verklok eru vorið 2026.
Eftir Rúnar Helgi Björnsson 29. október 2024
Tréverk ehf hefur hafið byggingu vélageymslu fyrir Skíðafélag Dalvíkur og ganga framkvæmdir vel. Byggingin er fyrir geymslu og viðgerðir á snjótroðurum og öðrum tækjum, ásamt skíðaleigu. Burðarvirki er steinsteypt og er niðurgrafinn að hluta. Grunnflötur er 385m² og byggingarreitur er 1329,5m². 
Fleiri færslur