Ingólfur Jónsson 1936-2026
Ingólfur Jónsson var einn af fimm stofnendum Tréverks árið 1962. Fyrstu nítján rekstrarár fyrirtækisins gegndi hann, til hliðar við hinar daglegu smíðar, starfi framkvæmdastjóra og stýrði því á upphafsárunum í gegnum ófáa brimskaflana. Ingólfur lét af störfum hjá Tréverki árið 1981 og flutti í kjölfarið með fjölskyldu sinni á Laugaland á Þelamörk þar sem hann starfaði sem húsvörður og handavinnukennari. Síðustu fjörutíu árin bjó Ingólfur á Akureyri og þar lést hann 5. mars sl., á nítugasta aldursári.

Ingólfur fæddist á Dalvík 17. mars 1936 og ólst þar upp. Smíðar lærði hann hjá Jóni Sigurðssyni – Jonna á Sigurhæðum og lauk sveinsprófi í húsasmíði árið 1957 og meistararéttindum þremur árum síðar. Einnig starfaði Ingólfur með Hallgrími Antonssyni og um tíma með Stefáni Árnasyni. Þegar sú hugmynd kom upp að stofna Tréverk ákvað Ingólfur að slá til. Hinir fjórir stofnendur Tréverks voru Sveinn Jónsson, Aðalberg Pétursson, Bragi Jónsson og Hallgrímur Antonsson.

Frá fyrsta degi var Ingólfi falin framkvæmdastjórn fyrirtækisins.

Óneitanlega var stofnun Tréverks nokkur óvissuför en fyrir unga og bjartsýna menn var engin hindrun óyfirstíganleg. Þessi fyrstu ár voru lærdómsrík, oft og tíðum erfið, en samhentur starfsmannahópurinn skilaði góðum verkum. Vinnudagur Ingólfs var jafnan langur. Auk þess að stýra útiverkunum og halda utan um hina daglegu þræði í rekstrinum nýttust kvöldin og helgarnar til þess að vinna í bókhaldi fyrirtækisins í kjallaranum heima í Hólavegi.

Það skipti miklu máli að hafa yfirvegaðan mann eins og Ingólf Jónsson í stafni Tréverks á bernskuárum þess. Hlutur hans í því að leggja grunninn var stór og ofan á þann grunn hefur verið byggt á sjöunda tug ára. Tréverk stendur í mikilli þakkarskuld við Ingólf fyrir hans miklu þrautseigju við uppbyggingu fyrirtækisins.

Eftir að Ingólfur lét af störfum hjá Tréverki árið 1981 fylgdist hann vel með vexti og viðgangi fyrirtækisins. Honum þótti sérlega vænt um þegar stjórn Tréverks ákvað að láta skrifa og gefa út bók á sextugsafmælinu árið 2022 og halda þannig sögu fyrirtækisins til haga.

Tréverk kveður Ingólf Jónsson með virðingu og þökk. Við sem störfuðum með honum minnumst hans sem farsæls samstarfsmanns og fagmanns og fyrir allt það sem hann gerði fyrir Tréverk. Ingólfur var sannarlega einn af frumkvöðlunum sem ruddu brautina. Blessuð sé minning hans.

Fyrir hönd Tréverks,

Björn Friðþjófsson.

Eftir Rúnar Helgi Björnsson 16. október 2025
Tréverk hefur hafið framkvæmdir við tvö ný glæsileg parhús við Svarfaðarbraut á Dalvík, þar sem rísa munu samtals fjórar íbúðir. Húsin munu standa við Svarfaðarbraut 19–21 og 23–25 og eru einnar hæðar byggingar með bílskúr og verönd. Íbúðirnar við Svarfaðarbraut 19–21 eru um 140 m² að stærð, en íbúðirnar við 23–25 eru 152 m². Allar íbúðirnar eru rúmgóðar og bjartar, með tveimur svefnherbergjum, alrými, baðherbergi og þvottahúsi með tengingu við bílskúr. Húsin eru hönnuð af Kollgátu arkitektum og eru uppsteypt með álklæðningu í ljósum lit og viðarklæðningu sem setur hlýjan svip á húsin. Aðkoma og bílastæði verða upphituð með snjóbræðslukerfi, og gert er ráð fyrir hleðslustöðvum fyrir rafbíla við bílskúra. Framkvæmdir ganga vel og stefnt er að því að íbúðirnar verði til afhendingar í lok næsta árs. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband fyrir nánari upplýsingar.
1. nóvember 2024
Tréverk ehf hefur hafið framkvæmdir við byggingu fjölbýlishús við Dvergaholt 1 á Akureyri. Um er að ræða fjölbýlishús á tveimur hæðum með 10 íbúðum. Áætluð verklok eru vorið 2026.
Fleiri færslur