Kristján Þorvaldsson nýr meðeigandi í Tréverk ehf.
Tréverk ehf tilkynnir að Kristján Þorvaldsson, sem hefur starfað hjá okkur frá unga aldri og öðlast ríkulega reynslu á þessum árum, er nú orðinn einn af hluthöfum félagsins og orðinn hluti af stjórnendateymi Tréverks.
Eigendahópurinn telur nú átta manns og bætist Kristján þar inn sem góð viðbót í takt við stefnu fyrirtækisins um að yngja upp í hópi eigenda og uppbyggingu framtíðarforystu félagsins.