Nú á dögunum hófu fimm ungir heimamenn sumarstörf hjá Tréverk en þeir eru allir nemar í húsasmíði. Um er að ræða metnaðarfulla og áhugasama stráka sem fá tækifæri til að öðlast dýrmæta reynslu við fjölbreytt verkefni á vegum fyrirtækisins.
Hjá Tréverk leggjum við áherslu á að gefa ungu fólki tækifæri til að læra fagið í raunverulegum verkefnum. Í gegnum tíðina hafa um 80 ungir nemar stigið sín fyrstu skref hjá fyrirtækinu og í sumar fá strákarnir að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og vinna með reynslumiklum starfsmönnum fyrirtækisins.
Við hjá Tréverk erum stolt af því að fá unga heimamenn til starfa og taka þátt í að byggja upp næstu kynslóð fagmanna í greininni. Við bjóðum þá velkomna til starfa og hlökkum til að sjá þá takast á við margvísleg verkefni í sumar.

Frá vinstri: Ísar Hjalti Hafþórsson, Þorri Jón Níelsson, Jakub Gabriel Florczak, Patrekur Örn Ingvason og Unnar Marinó Friðriksson.


